Er að verða amma!

Ég á 4 börn Vilhjálm Hendrik (hákarl), Karen Dögg (Karó), Tinnu Björt, og Jóhann Friðrik (JFK). Svo á hann Gísli minn 4 börn, Kristínu, Friðrik, Harald og Darra,  saman eigum við s:s 8 börn, og hana Dimmu svartan labrador, sem finnst agalega gaman að synda í Hvaleyravatni.Tounge

Hún Tinna Bjarta mín er að gera mig að Ömmu, Winkog ég verð að viðurkenna að ég er orðin obbolega spennt, að sjá litlu yndislegu stelpuna, sónarinn seigir að það sé dama, já eins gott, því ekki förum við að klæða strákinn í öll bleiku dressin sem búið er að versla.

Það er svo merkilegt að vera amma, þegar ég hugsa um það, að barnið mitt er að fara að eiga barn. það sem er efst í mínum huga er hvaða veganesti gefum við börnunum okkar, þvílík ábyrgð og í rauninni mikil áhrif sem við höfum.  Þegar ég lít til baka, og hugsa um þegar ég var með mín lítil, þá sé að ég myndi gera ýmislegt öðruvísi, að því í dag er ég þroskaðri, en það sem hefur haft svo sterk áhrif á þau er trúin á Drottinn Jesús.  Þetta eru sömu áhrifin og ég fékk í mínu uppeldi,, svona eins og þráður í gegnum mína fjölskyldu, ég er svo þakklát í dag fyrir þessi áhrif, því þau hafa bara gert mér gott, og ég hlakka svo til að biðja bænir með litlu ömmustelpunni minni, og segja henni frá Kærleika Guðs, og hvað hann elskar okkur mikið, að hann gaf sinn einkason, þessi boðskapur er svo fallegur að það verður að  segja frá honum.

Allavega þá er stutt í að ég geti sagst vera orðin amma, í byrjun Júni er von á hríðumW00t!

Njótum þess að vera til, og höfum ekki áhyggjur af morgundeginum, hann kemur hvort sem er, með öllu tilheyrandi!Smile

 

Picture 118         Picture 126

Tinna komin 7 og 1/2 mánuð - ein á flippinu og ein ferlega sæt :)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er víst sú sem er að gera þig að ömmu :)

þú ert bara góður penni mamma mín, en þó lengi að draga hann :P

vá var að pæla, hot grandma marr, ert hot mama hvað þá amma.. jæja smá pæling hjá mér bara!

Við elskum þig mest!! Lillan sparkar til þín ;)

Tinna sín og lillan sín

Tinna Björt (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 23:28

2 identicon

hæ elsku mamma já ég trúi því varla að þú sért að verða amma og að ég hafi ekki verið sú fyrsta sem gerði þig að því hehe en það verður yndislegt og þú verður besta amma í heimi enda besta mamma í heimi =)

já algerlega Tinna, hún verður sko hot amma =) ert svo ungleg og skrýtið að þú sért þá að taka þetta hlutverk að þér en þú munt alveg taka þig vel út,allir munu bara halda að þú sér mamman hehe

og ég er svo stolt af því að þú sért að fara í nám!!!!!!! munt sko brillera!! enda ertu svo gáfuð og þú hefur svo margt fram að ´bjóða að það væri bara ósanngjarn fyrir heiminn að fá ekki að njóta þess hehe kiss

ég elska þig mamma mín og ég hlakka til þegar við 4 stelpurnar löbbum saman laugarveginn með barnavagninn og höfum það gott ummmmmmm =)

p.s og já þú ert þrusu góður penni , hefur þetta frá mér híhí

Karó (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:47

3 Smámynd: Sigríður Guðnadóttir

hæ hó !! þú ert frábær penni dúlla  

Vá hvað Tinna er falleg ( enda góð gen í báðar áttir )  á svoldið erfitt með að skrifa - Solla lét á mig neglur áðan - ehhehhhehehehehhehehe

lofjú hon þú ert best

Sigga sys

Sigríður Guðnadóttir, 17.4.2008 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband