2.9.2008 | 22:36
Kveðjupartý og fl......
Þá eru Þórey mín og co farin aftur til Svergie en þau komu í lok ágúst til að vera í afmæli Hönnu mömmu, og það var svo frábært að hitta þau, alveg yndisleg öll. Við héldum smá stelpukveðjupartý fyrir Þórey heima hjá Hönnu Rúnu og það eru myndir í albúmi af því og fl....algert must að hittast, eftir svona langa fjarveru, enda erum við allar svo ægilega skemmtilegar og nauðsynlegar, verð að segja að ég er svo lánsöm að þekkja svona frábærar konur, sem auðga líf manns! Elsku Þórey mín og fjölskylda takk fyrir að vera alltaf svona yndisleg, hlakka til að hitta ykkur aftur, hvort sem verður í Svíðþjóð eða.....? LOVJÚ! GUÐ GEYMI YKKUR!
Athugasemdir
oh hvað var gaman
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 3.9.2008 kl. 10:17
Sæl og blessuð Bryndís mín.
Það hefði verið gaman að vera þarna sem leynigestur. Þekkti fullt af þessum dömum sem voru þarna í partýi.
Guð veri með þér og þínum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.9.2008 kl. 12:53
Rósa Við bara höldum brjálað partý þegar þú kemur í bæinn ekki satt !
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 3.9.2008 kl. 13:00
Sæl mín kæra.
Líst vel á það. Alltaf gaman að vera í góðra vina hópi. Þú manst bara hvað við vorum flott saman í Vestmannaeyjum.
Af hverju í ósköpunum gat ég ekki komið og látið ríkið borga fyrir þessa smánar lús miðað við það sem þurfti að borga fyrir Þorgerði Katrínu og co til Kína.
Guð veri með þér.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.9.2008 kl. 13:39
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 14:19
Ekki sama hver er þú veist hvernig það er, en við stöndum saman fyrir utan allt ríki og co! Við erum líka flottust eða þannig!
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 3.9.2008 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.