Á LEIÐ TIL DUBLIN!

  

 

þá er komið að því að fara til Dublin eldsnemma í fyrramálið og nú er eins gott að fara pakka og undirbúa, þar sem ég hef ekki verið í neinum ferðagír er ég með allt á síðustu stundu, er meira að segja að fara á kveldvakt. En þetta er nú bara 4 daga ferð, getur varla verið flókið, er á leið í bankann minn að ná mér í evrur, sem eru skammtaðar, þarf að koma með farseðilinn til að sanna mitt mál. Ég er 3x búin að prenta út miðann, þar sem alltaf einhverjar breytingar hafa orðið á áætlun, vona bara að tíminn standist á morgun. Er svo ánægð að hafa Kareni mína með, þar sem við vinnum á sama stað. Hafið það gott og yndislegt alla vega ætlum við Karen og vinnfélagarnir að skemmta okkur í DublinSmile!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

3 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

góða ferð vinkona... hafðu það gott og njóttu þess að slappa af. vonandi fáið þið gott veður. þarft ekkert að kaupa mikið handa mér.

love you

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 19.11.2008 kl. 16:43

4 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

elsku Bryndís, það verður virkilega gaman fyrir þig að heimsækja Dublin. þangað fór ég fyrir agalega mörgum árum (ef ég fer að reikna það út verð ég eitthvað svo gömul)

Anyway, það jafnast fátt á við ekta írska pöbba með lifandi írskri  tónlist og  láttu  allavega einn guiness eftir þér

Guðrún Sæmundsdóttir, 19.11.2008 kl. 21:37

5 Smámynd: Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir

Takk elskurnar fyrir fallegar kveðjur

bless í bili

Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 20.11.2008 kl. 00:21

6 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

Bryndís.... ég er að bíða eftir bloggmyndum frá you know

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 26.11.2008 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband