Uppáhaldsljóðið mitt! Ljóðaljóðin 7:11-13

 

kom unnusti minn, við skulum fara út

á víðan vang,

hafast við meðal kypurblómanna.

Við skulum fara snemma upp í

víngarðana,

sjá, hvort vínviðurinn er farinn að

bruma,

hvort blómin eru farin að ljúkast upp,

hvort granateplin eru farin að

blómgast.

Þar vil ég gefa þér ást mína.

Ástareplin anga

og yfir dyrum okkar eru alls konar

dýrir ávextir,

nýir og gamlir, unnusti minn,

ég hefi geymt þér þá.

 


Sumarið er Tíminn!

CoolGleðilegt sumar jibbý! Ég vona að við komum flest vel undan vetri. ég er allavega í ágætu standi. Ég elska sumartímann, hver gerir það ekki annars, alla vega íslendingar, sem eiga ekki hús á Florida eða Spáni. Það er reyndar ekkert voðalega sumarlegt núna, en það skiptir ekki máli, því í dag seigir dagatalið mitt að sumardagurinn fyrsti er í dag! Og ég tek því fagnandi og ætla að vera hrikalega bjartsýn og trúa því að þetta verði besta sumar ever, og kaupa mér bleik bikiní eða.. já kannski ekki góð hugmyndWoundering! Sé fyrir mér allt sem á eftir að gerast í sumar, með mig í aðalhlutverki svona ægilega brúna og sæta. Má ekki vera að því að skrifa núna ég ætla út og finna sumarið, bjóða það velkomið, ég vona að sólin verði ekki feimin!Blush Sólarkveðjur og gangið í Guðsfriði sólarmeginn! Bryndís Eva sólskinsbarn!Smile

 


Villi Hákarl að dimmitera, víkingur með englahár!

myndir bev 023myndir bev 024


Bara Snilld!


Búin með þennan áfanga!

Ég er búin að vera núna fyrir og eftir áramót á fagnámskeiði  3x í viku. Þetta voru stundir í heilbrigðisifræði, félagsfræði, námstækni, skyndihjálp og lyfjafræði, já bara nokkuð gott og fræðandi, og ég get sagt einlæglega að ég fór í þetta með opnum huga, og ákveðinn í að auka á þekkingu og hæfni, og það held ég að hafi tekist, er svo sem ekki orðin nein hjúkka, en eitthvað í áttina að verða félags-sjúkraliði.Errm ég er samt ótrúlega fegin að vera búin með þennan áfanga, var farin að missa mig smá í einbeitingu. Alla vega er þetta ætlað sem undirbúningur fyrir nám sem ég fer í, í haust, já alveg rétt ég ætla að drífa mig í skóla, eins gott að vera með athyglina þá á réttum stað. Ég verð nú að játa að ég er ótrúleg stemmningsmanneskjaWhistling elska að fara á kaffihús, út að borða, og þó ég sé ekki endilega svöng eða kaffiþyrst, bara stemmningin að fara.  þess vegna alltaf á hverju hausti, þegar skólarnir eru að byrja og skólafólkið, er að kaupa bækurnar sínar, nýja tösku, ilmandi gott strokleður og óyddaðan blýant, þá kemur þessi stemmning yfir mig. (Ég vil líka fara í skólaFootinMouth).  Eða er ég kannski bara kaupafíkill, og vill vera með í kaupunum og hlaupunum, það er líka stemmning í því .

Alla vega þá ætla ég að fara í skóla í haust og ég get uppyllt allar þessar óskir, læra mér til menntunar og skemmtunar, fæ hærri laun, og get svalað aðeins meir kaupagleðinni.

Jahérna ég er strax farin að hlakka til, ég ætla að standa mig þvílíkt vel, og sitja á fremsta bekk, og þó að ég þjáist oft af athyglisbresti og dett inn í draumaheim,Sleepingþá er eitt alveg á hreinu að þetta verður gríðalega MIKIL STEMMNING!

 


Er að verða amma!

Ég á 4 börn Vilhjálm Hendrik (hákarl), Karen Dögg (Karó), Tinnu Björt, og Jóhann Friðrik (JFK). Svo á hann Gísli minn 4 börn, Kristínu, Friðrik, Harald og Darra,  saman eigum við s:s 8 börn, og hana Dimmu svartan labrador, sem finnst agalega gaman að synda í Hvaleyravatni.Tounge

Hún Tinna Bjarta mín er að gera mig að Ömmu, Winkog ég verð að viðurkenna að ég er orðin obbolega spennt, að sjá litlu yndislegu stelpuna, sónarinn seigir að það sé dama, já eins gott, því ekki förum við að klæða strákinn í öll bleiku dressin sem búið er að versla.

Það er svo merkilegt að vera amma, þegar ég hugsa um það, að barnið mitt er að fara að eiga barn. það sem er efst í mínum huga er hvaða veganesti gefum við börnunum okkar, þvílík ábyrgð og í rauninni mikil áhrif sem við höfum.  Þegar ég lít til baka, og hugsa um þegar ég var með mín lítil, þá sé að ég myndi gera ýmislegt öðruvísi, að því í dag er ég þroskaðri, en það sem hefur haft svo sterk áhrif á þau er trúin á Drottinn Jesús.  Þetta eru sömu áhrifin og ég fékk í mínu uppeldi,, svona eins og þráður í gegnum mína fjölskyldu, ég er svo þakklát í dag fyrir þessi áhrif, því þau hafa bara gert mér gott, og ég hlakka svo til að biðja bænir með litlu ömmustelpunni minni, og segja henni frá Kærleika Guðs, og hvað hann elskar okkur mikið, að hann gaf sinn einkason, þessi boðskapur er svo fallegur að það verður að  segja frá honum.

Allavega þá er stutt í að ég geti sagst vera orðin amma, í byrjun Júni er von á hríðumW00t!

Njótum þess að vera til, og höfum ekki áhyggjur af morgundeginum, hann kemur hvort sem er, með öllu tilheyrandi!Smile

 

Picture 118         Picture 126

Tinna komin 7 og 1/2 mánuð - ein á flippinu og ein ferlega sæt :)

 


Komin í nútíman!

Hæ ef einhver er þarna!

 Veit ekki hvað kom yfir mig, en ég er á leiðinni inní bloggheiminn. Wink

 Svo sjáum við bara til hvernig gengur, mun ég halda út eða......

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband